Námskeiðin eru með breyttu sniði frá fyrra formi, en núna er námskeiðunum hjá Hrafnhildi skipt í tvennt, annars vegar hringteymingar- og brokkspíruþjálfunarnámskeið þar sem lögð er áhersla á hringteymingarvinnu og hins vegar vinna við hendi námskeið, þar sem lögð er áhersla á vinnu á beisli til að auka skilning fyrir ábendingum þegar farið er í hnakkinn.

Hringteymingar- og brokkspíruþjálfun

Hringteymingarvinna eru frábær tilbreyting í þjálfun hestsins sem stuðlar að bættu jafnvægi, auknum sveigjanleika og réttri vöðvauppbyggingu. Farið verður í hvernig hægt er að notast við hringteymingarvinnu til þess að þjálfa auga knapans við að greina misstyrk og líkamsbeitingu hestsins, ná betri stjórn á yfirlínu og andlegu jafnvægi. Jafnframt hefur brokkspíru- og hindrunarstökksþjálfun fjölmarga ávinninga, s.s. að auka liðleika, styrk og samhæfingu. Slík þjálfun hvetur hestinn til þess að teygja á yfirlínunni, virkja kvið- og kjarnvöðva og hefur einnig jákvæð andleg áhrif þar sem hesturinn verður einbeittari, öruggari og jákvæðari.

Farið er í grunnatriði hringteymingarþjálfunar, notkun hringtaumsbúnaðar og í framhaldi af því í notkun á brokkspírum og litlum hindrunum.

Nemendur mæta með eigin hest og búnað á hestinn. Búnað sem þarf að koma með í fyrsta tíma er snúrumúll, vaður, hringtaumsmúll eða multibridle, reiðtaumur og reiðpískur.

Hámark 3 nemendur í hverjum hóp.

Námskeiðin fara fram á miðvikudögum og eru 6 skipti frá 5. janúar til og með 9. febrúar frá kl. 17-19.

Verð 30.000 kr

Vinna við hendi

Farið verður í hvernig hægt er að notast við vinnu við hendi til að hjálpa hestinum að skilja grunnábendingar og að ná betri stjórn á yfirlínu og andlegu og líkamlegu jafnvægi. Grundvöllur árangurs er að hesturinn sé sáttur og skilji ábendingar knapans, hvort sem það er frá jörðu eða á baki.

Vinna við hendi hjálpar til við bæta samhæfingu þjálfarans og gefur honum færi á því að sjá hvernig hesturinn bregst við ábendingum og hreyfir fæturnar. Jafnframt hefur slík vinna afar jákvæð áhrif á samband manns og hests, eykur gagnkvæma virðingu og styrkir leiðtogahlutverkið.

Farið verður í notkun fimiæfinga frá jörðu og hvaða ávinning þær hafa fyrir hestinn.

Nemendur mæta með eigin hest og búnað. Búnað sem þarf að koma með í fyrsta tíma er snúrumúll, vaður, beisli, reiðtaumur og reiðpískur.

Hámark 5 nemendur saman í hverjum hóp.

Námskeiðin fara fram á miðvikudögum og eru 6 skipti frá 5. janúar til og með 9. febrúar frá kl. 19-21.

Verð 18.500 kr.

Skráning á www.sportfengur.com