Arnar Bjarki Sigurðsson verður áfram með paratíma mars sem eru opnir öllum aldurshópum og getustigum. Kennslan verður einstaklingsmiðuð, en tveir knapar eru inni á vellinum í einu.

Arnar Bjarki er með Bsc gráðu frá Háskólanum á Hólum í reiðmennsku og reiðkennslu og var þjálfari U21 landsliðs LH. Hann er einnig alþjóðlegur kynbótadómari og hefur mikla reynslu á sviði íþróttakeppna.

Námskeiðið hentar öllum sem vilja bæta sig og hestinn sinn, hvort sem er til keppni eða almennra útreiða.

Kennsla fer fram á mánudögum í TM Reiðhöllinni.

  • Námskeiðið er vikulega á mánudögum frá 1.-22. mars.

Hver tími er klukkustund og er kennsla eftirfarandi: kl. 16-17 / 17-18 / 18-19 / 19-20 / 20-21 / 21-22 / 22-23.

Verð er 25.000 kr. á mann per námskeið og fer skráning fram í gegnum https://skraning.sportfengur.com/