Viltu bæta burð og léttleika í hestinum þínum? Bæta ásetu, samspil, mýkt ? Að bæta sitt jafnvægi er grunnur að því að bæta jafnvægi hestsins.

Súsanna Sand er reiðkennari frá Hólum og hefur endurmenntað sig undanfarin ár í spænskri reiðmennsku í Andalúsíu. Þar er lögð áhersla á líkamsbeitingu knapa og hests með áherslu á burð léttleika og þjálni, sem nýtist afar vel inn i okkar reiðmennsku.

Súsanna er einnig íþrótta og gæðingakeppnisdómari.

Súsanna myndi byrja fyrsta tímann á að skoða knapa og hest, taka videó, prufa hestinn/vinna með hann og gera raunhæft plan fyrir hvern og einn.

Dagsetningar á einkatíma er 27.feb og 3.mars og verður pörum skipt á sitthvorn daginn sem verður á sama tíma og paranámskeiðið sem hver og einn bókar sig í.

Í framhaldi einstaklingsmiðaðir paratímar. Áhersla á léttleika í reiðmennskunni og jafnvægi.

Kennt verður á miðvikudögum frá 27.febrúar -31.mars. Tímasetningar frá 16:00-21:15.

Kennsla fer fram í TM Reiðhöllinni.

Verð er 33.000 kr. á mann og fer skráning fram í gegnum

https://skraning.sportfengur.com/