Námskeið með Súsönnu Sand

Súsanna Sand er reiðkennari frá Háskólanum á Hólum, íþrótta og gæðingakeppnisdómari. Hún hefur endurmenntað sig undanfarin ár í spænskri reiðmennsku í Andalúsíu. Þar er lögð áhersla á líkamsbeitingu knapa og hests með áherslu á burð léttleika og þjálni, sem nýtist afar vel inn i okkar reiðmennsku.

Súsanna verður með einstaklingsmiðaða kennslu með áherslu á líkamsbeitingu knapa og hests.

Að bæta sitt jafnvægi og ábendingar er grunnur að því bæta jafnvægi, léttleika og mýkt hestsins

Kennt verður 4 miðvikudaga í röð frá 1. -22. mars 2023 frá kl.16:00 – 20:00. Tímarnir eru 40 mín hver.

Námskeið með Steinari Sigurbjörns

Steinar Sigurbjörnsson reiðkennari bjóða upp á fjóra 45 mínútna einkatíma í reiðhöllinni C-tröð á mánudögum frá og með 27. febrúar.

Steinar starfaði í mörg ár í Bandaríkjunum sem reiðkennari og þjálfari við miklar vinsældir. Undanfarið ár hefur hann sinnt kennslu við háskólann á Hólum. Hann hefur gefið út kennsluefni og byggt upp þjálfunarkerfi (Intrinzen) sem nálgast hestinn með áherslu á að bæta líkamsstöðu hans og sjálfstraust.

Kennslan getur farið fram hvort sem er í reið eða í hendi allt eftir óskum og þörfum knapa og hests. Steinar notast við skýra, hestvæna og árangursríka nálgun við reiðkennslu.