Fræðslunefnd Fáks hefur fengið hana Julie Christiansen til þess að halda námskeið hér í TM-Reiðhöllinni í Víðidal helgina 15.-17. október. Julie þarf vart að kynna en hún er margfaldur heimsmeistari og danskur meistari í hestaíþróttum.

Hestamönnum býðst nú einstakt tækifæri til þess að fara í einkatíma hjá hinni flinku Julie sem er þekkt fyrir að ná einstökum árangri á stuttum tíma. Hver tími er 45 mínútur og innifalið í námskeiðinu eru tveir einkatímar á mann, einn á föstudegi og einn á laugardegi eða einn á laugardegi og einn á sunnudegi.

Einungis 10 pláss eru í boði og því gildir sú skemmtilega regla að fyrstir koma, fyrstir fá. Námskeiðið er opið fyrir alla gilda meðlimi í hestamanafélagi. Skráning fer fram í gegnum Sportfeng og stendur yfir til 15. október næstkomandi. Námskeiðið kostar 35.000 kr.

Byrjaðu þjálfunartímabilið með krafti í tímum hjá góðum kennara.

Námskeiðið verður haldið með þeim fyrirvara að næg þáttaka náist.

Skráning fer fram á skraning.sportfengur.com

Fræðslunefnd Fáks