Námskeiðið byrjar kl. 10 í Guðmundarstofu. Léttur hádegisverður og verklegir byggingadómar eftir hádegi (klæða sig vel).
Greiða þarf á staðnum (posi).

Þorvaldur Kristjánsson, ábyrgðarmaður yfir hrossaræktinni í landinu, mun halda námskeið um byggingu kynbótahrossa í Fáki. Markmið námskeiðsins er að bjóða upp á ítarlega fræðslu um þau atriði sem horft er til þegar eiginleikar byggingar eru metnir og hvernig þeir eru dæmdir. Einnig verður farið yfir tengsl byggingar og hæfileika og það hvernig best er að stilla hrossi upp fyrir byggingardómi.

Námskeiðið byggir að hluta til á fyrirlestrum en áhersla verður líka lögð á verklegar æfingar. Námskeiðið verður haldið laugardaginn 25. febrúar í Guðmundarstofu og TM-Reiðhöllinni og er frá 10:00 – 15:30. Boðið verður upp á hádegisverð (inni falið í námskeiðsgjaldinu).
Verð kr. 8.500 (takmarkaður fjöldi sem kemst að).
Skráning á fakur@fakur.is

Við hvetjum alla kaffistofu- og brekkukynbótadómara til að mæta, læra og hafa gaman saman og geta þá í framtíðinni veifað diploma frá hrossaræktarráðunautnum máli sínu til stuðnings:)