Að leggja á skeið er einfaldlega toppurinn á hestamennskunni 🙂  Því er tilvalið að skella sér á  skeiðnámskeið  þar sem hinn frækni og marfaldi Íslands- og heimsmeistari  Sigurbjörn Bárðarson mun kenna knöpum á öllum aldri (16 ára og uppúr) listina að leggja hest á skeið.

Farið verður í ábendingar, ásetu, uppbyggingu skeiðhests, niðurtöku, skeiðsprettinn og hvernig enda á sprettina. Bóklegur tími og verklegir tímar verða í Reiðhöllinni 18. og 19. mars (nánari tími fyrir bóklegan tíma auglýstur síðar).

Allir þeir sem hafa áhuga á að taka þátt sendi póst á fakur@fakur.is