Áseta knapans er eitt því mikilvægasta sem hann þarf að tileinka sér. Hún fegrar ekki bara heildarmyndina, heldur er knapi í góðu jafnvægi þægilegri fyrir hestinn, notar skilvirkari ábendingar til að stjórna hestinum og siðast en ekki síst bætir það öryggið þar sem knapinn dettur síður af baki.

Kosturinn við ásetuæfingar í hringtaum er að knapinn getur einbeitt sér að sínum eigin líkama og ásetu án þess að þurfa að stjórna hestinum.

Á námskeiðinu gerum við æfingar aðallega á hesti en líka á gólfi með markmiðið að bæta líkamsstöðu og -vitund okkar á hestbaki sem og í daglegu lífi.

Á námskeiðinu er unnið í pörum þar sem annar hringteymir og hinn gerir æfingar á hesti til skiptis. Ekki er nauðsynlegt að skrá sig í pörum.

Námskeiðið hefst föstudaginn 13. desember klukkan 17:00 í TM-Reiðhöllinni. Námskeiðið er samtals 4 tímar, 2 fyrir áramót og 2 eftir áramót.

Verð er 10.000 kr.

Skráning fer fram á www.sportfengur.com