Anton Páll verður með helgarnámskeið 17. – 18. apríl næstkomandi. Kennslan fer fram í 50 mín einkatímum báða dagana. Mælst er til þess að nemendur fylgist með kennslu hjá samnemendum sínum.

Verð fyrir helgarnámskeiðið er 35.000 kr.

Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum.

Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross. Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska. Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni.

Skráning fer fram á skraning.sportfengur.com