Helgarnámskeið með Antoni Páli – 15.-16. janúar

Anton Páll verður með helgarnámskeið 15.-16. janúar næstkomandi. Kennslan fer fram í 50 mín einkatímum báða dagana. Mælst er til þess að nemendur fylgist með kennslu hjá samnemendum sínum.

Verð fyrir helgarnámskeiðið er 35.000 kr.

Anton Páll Níelsson er menntaður reiðkennari B frá Háskólanum á Hólum.

Hann hefur kennt við Hólaskóla í fjölda mörg ár auk þess að sinna reiðkennslu víða um heim og rækta hross. Anton Páll hefur verið einn af þjálfurum íslenska landsliðsins í hestaíþróttum sem og nokkrum erlendum landsliðum, t.d. því sænska og austurríska. Anton Páll er þekktur fyrir einfalda, hreinskilna, hestvæna og mjög árangursríka nálgun í reiðkennslu sinni.

Skráning fer fram á www.sportfengur.com

By |2021-12-30T11:15:43+00:0030/12/2021|Fréttir, Námskeið|Comments Off on Helgarnámskeið með Antoni Páli – 15.-16. janúar

About the Author:

Go to Top