Gæðingamót Fáks – Úrtaka fyrir Landsmót 2022 fer fram dagana 26.-29. maí næstkomandi á Hvammsvelli.
Skráning á mótið verður auglýst síðar.

Mótið er lokað þar sem um úrtöku fyrir Landsmót er að ræða.

Ákveðið hefur verið að bjóða upp á tvöfalda úrtöku og verður fyrirkomulagið eftirfarandi:

  • Fimmtudagur 26. maí – Fyrri umferð, allir gæðingaflokkar
  • Laugardagur 28.. maí – Seinni umferð, Tölt T1 og skeiðgreinar.
  • Sunnudagur 29. maí – Úrslit: Árangur úr fyrri umferð gildir til úrslita.

Ekki er hægt að skrá hesta eða knapa í seinni umferð hafa þeir ekki tekið þátt í þeirri fyrri. Skráning í seinni umferð er valkvæð og verður skráning opin föstudaginn 28. maí frá 08:00 til 12:00 á hádegi.

Inn á Landsmót gildir betri árangur hests eða knapa úr fyrri eða seinni umferð.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

  • A flokkur Gæðinga
  • B flokkur Gæðinga
  • Ungmennaflokkur
  • Unglingaflokkur
  • Barnaflokkur
  • Pollaflokkur
  • 100m Skeið
  • 150m Skeið
  • 250m Skeið
  • Tölt T1