Hestamannafélagið Fákur og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið sem hefst mánudaginn 5. nóvember nk. með bóklegum tíma í Guðmundarstofu. Verklegir tímar hefjast svo 6. nóvember  og kemur hver þátttakandi með sitt trippi. Farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s.

Atferli hestsins
Leiðtogahlutverk
Fortamning á trippi
Undirbúningur fyrir frumtamningu
Frumtamning

Bóklegir tímar: 1
Verklegir tímar: 11
Tímar: mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga í fjórar vikur.
Verð: 40.000.-
Fjórir nemendur verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 – 16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í TM-Reiðhöllinni og í hesthúsinu hjá Róberti þar sem unnið verður með trippin. Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.
Skráning á robbi@hestar.is og gott að gera það sem fyrst til að tryggja pláss og tíma en í tölvupóstinum þarf að koma fram; Nafn, kennitala, ósk um tímsetningu (kl. 17-18-19-20-21) og gsm númer. Nánari upplýsingar veitir Robbi í síma 897 5580.
Námskeiðið er öllum opið 🙂