Fræðslunefnd Fáks undirbýr nú næsta starfsár og hefur hug á því að hefja tímabilið af krafti í september 2020.

Óskar nefndin því eftir umsóknum frá áhugasömum reiðkennurum sem hefðu hug á því að kenna eða vera með sýnikennslu í Fáki á tímabilinu september 2020 til maí 2021. Fyrirkomulagið getur verið margvíslegt, allt frá dagsnámskeiði til viku- eða mánaðarlegra námskeiða yfir ákveðið tímabil svo dæmi sé tekið.

Þá hefði nefndin einnig áhuga á að heyra frá öðru fagfólki í hrossarækt sem hefði áhuga á því að vera með fræðslu fyrir Fáksfélaga. Þeir fræðslufundir sem voru haldnir í vetur voru mjög vel sóttir og áhugi félagsmanna mikill um allt sem viðkemur hestamennskunni. 

Tekið verður við umsóknum/fyrirspurnum á netfanginu fraedslunefnd@fakur.is til og með 31.05.2020. Í umsókninni þarf að koma fram um hvers konar námskeið eða fræðslu er að ræða.

Nefndin áskilur sér rétt til þess að velja og hafna umsóknum.