Súsanna Sand er reiðkennari frá Háskólanum á Hólum, íþrótta og gæðingakeppnisdómari. Hún hefur endurmenntað sig undanfarin ár í spænskri reiðmennsku í Andalúsíu. Þar er lögð áhersla á líkamsbeitingu knapa og hests með áherslu á burð léttleika og þjálni, sem nýtist afar vel inn i okkar reiðmennsku.

Súsanna verður með einstaklingsmiðaða kennslu með áherslu á líkamsbeitingu knapa og hests.

Að bæta sitt jafnvægi og ábendingar er grunnur að því bæta jafnvægi, léttleika og mýkt hestsins

Kennt verður 4 miðvikudaga í röð frá 11.janúar – 1. febrúar 2023 frá kl.16:00 – 20:00. Tímarnir eru 40 mín hver.

Skráning fer fram hér: Sportabler.