Þórdís Erla Gunnarsdóttir reiðkennari frá Hólum mun bjóða upp á fjóra 40 mínútna einkatíma í vetur.

Tímarnir eru sniðnir að þörfum hvers og eins og markmiðið að bæta jafnvægi, sjálfstraust og líkamsbeitingu manns og hests. Leitast verður við að útskýra á einfaldan og áhrifaríkan hátt hvernig hægt er að nálgast hvert verkefni.

Kennslan hefst miðvikudaginn 19. janúar og verður kennt annan hvern þriðjudag til 2. mars.

Reiðkennslan fer fram í reiðhöllinni í C tröð á miðvikudögum.

Verð er 44.500 kr. og skráning fram í gegnum www.Sportfengur.com