Skráning á Reykjavíkurmeistaramót Fáks er opin og stendur til miðnættis 7. júní.

Á Facebook má finna viðburðinn undir nafninu „Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR“ og þar má finna ýmsar upplýsingar um mótið, svo það er um að gera að melda sig eða merkja við „going“ á þann viðburð til að fylgjast með fréttum.

Skráning fer fram á vef Sportfengs.
Allar spurningar varðandi skráningar á mótið skal senda skriflega á skraning@fakur.is. Skráningar sem berast eða eru ógreiddar eftir að skráningarfresti lýkur verða ekki teknar gildar.

Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:

  • Nái skráningar ekki 25 í flokki eru eingöngu riðin A-úrslit.
  • Nái skráningar ekki 10 í flokki fellur flokkurinn niður.
  • Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
  • Mótið er World Ranking mót og mikilvægt að keppendur hafi kynnt sér nýjustu útgáfu af keppnisreglum. Sjá nánar á vef LH og FEIF.

Skráningargjöld eru eftirfarandi:

  • 7.900 kr – meistaraflokkur og ungmennaflokkur (nema PP1, T3, V2 kr. 7.300)
  • 7.500 kr – 1. og 2. flokkur
  • 5.900 kr – barna- og unglingaflokkur
  • 5.900 kr – 150m, 250m og 100m flugskeið

Greinar og flokkar í boði:

  • T1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur
  • T2 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur
  • T3 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
  • T4 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
  • T7 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 2. flokkur.
  • V1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur
  • V2 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
  • V5 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 2. flokkur.
  • F1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur
  • F2 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
  • P1 – fullorðinsflokkur 150m skeið
  • P2 – fullorðinsflokkur 100m flugskeið
  • P3 – fullorðinsflokkur 250m skeið
  • PP1 gæðingaskeið – meistaraflokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.

 

Það verður að venju mikill hestakostur og glæsileg umgjörð sem einkenna munu Víðidalinn í Reykjavík þessa mótsdaga um og allir velkomnir að koma og fylgjast með heimsklassa sýningum í öllum keppnisgreinum, styrkleika- og aldursflokkum!

Velkomin í Víðidalinn!