Á miðnætti í kvöld, þriðjudaginn 7. júní lýkur skráningu á Reykjavíkurmeistaramót Fáks. Biðjum við fólk að skrá sig í tíma svo skrifstofa geti brugðist við ýmis konar vandamálum við skráningu.  

Mótið stendur dagana 13. – 19. júní. Á Facebook má finna viðburðinn undir nafninu „Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR“ og þar má finna ýmsar upplýsingar um mótið, svo það er um að gera að melda sig eða merkja við „going“ á þann viðburð til að fylgjast með fréttum.

Skráning fer fram á Sportfeng: sportfengur.com. Allar spurningar varðandi skráningar á mótið skal senda skriflega á skraning@fakur.is. Skráningar sem berast eftir að skráningarfresti lýkur verða ekki teknar gildar.

Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:

  • Nái skráningar ekki 25 í flokki eru eingöngu riðin A-úrslit.
  • Nái skráningar ekki 10 í flokki fellur flokkurinn niður.
  • Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
  • Keppendur skulu hafa kynnt sér nýjustu útgáfu af keppnisreglum. Sjá nánar á vef LHog/eða FEIF.
  • Knapafundur verður rafrænn á Facebook viðburðinum „Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR“ og þar verður hægt að koma með fyrirspurnir til yfirdómara og mótsstjóra.