1. vetrarleikar Fáks verða haldnir á laugardaginn næstkomandi, 24. febrúar klukkan 11:00. Vetrarleikar verða hefðbundnir og keppa pollar og börn inni í Lýsishöllinni og aðrir flokkar úti.

Skráning fer fram á Sportfeng nema fyrir polla, þeir skrá sig hér að neðan.

Skráningu lýkur 20:00 föstudaginn 23. febrúar og verða ráslistar birtir um morguninn. 

Ekkert skráningargjald er fyrir polla, 1500 kr fyrir börn, 2.000 kr fyrir unglinga og ungmenni og 3.000 kr fyrir fullorðinsflokka.

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að pollar og börn keppa inni í reiðhöllinni. Börn ríða upp á vinsti hönd hægt tölt og síðan frjálsa ferð. Úrslit verða riðin strax á eftir.

Úti skal sýna hægt tölt og frjáls ferð til baka, 2 ferðir. Úrslit á eftir hverjum flokki og verðlaunaafhending.

  • Pollaflokkur (teymdir)
  • Pollaflokkur (ríðandi)
  • Barnaflokkur minna vanir – Í Sportfeng merkt: Gæðingatölt – Barnaflokkur 2
  • Barnaflokkur meira vanir – Í Sportfeng merkt: Gæðingatölt – Barnaflokkur 1
  • Unglingaflokkur – minna vanir – Í Sportfeng merkt: Gæðingatölt – Unglingaflokkur 2
  • Unglingaflokkur – meira vanir – Í Sportfeng merkt: Gæðingatölt – Unglingaflokkur 1
  • Ungmennaflokkur – Í Sportfeng merkt: Gæðingatölt Ungmennaflokkur 1
  • Fullorðnir /minna vanir – Í Sportfeng merkt: Gæðingatölt – fullorðinsflokkur 2
  • Fullorðnir / meira vanir – Í Sportfeng merkt: Gæðingatölt – fullorðinsflokkur 1

Vakin er athygli á því að Hrímnir verður á svæðinu með mátnardag frá 10 til 13 fyrir félagsmenn sem vilja tryggja sér fatnað merktan Fáki. Sjá nánar hér: Mátunardagur.