Uppskeruhátíð ungmenna og fullorðinna auk viðurkenninga til ræktenda hæstu kynbótahrossa ársins fer fram í félagsheimili Fáks fimmtudaginn 8. október næstkomandi í félagsheimili Fáks.

  • Verðlaunaðir verða stigahæstu knapar ársins í ungmennaflokki, áhugamannaflokki og meistaraflokki.
  • Verðlaunaðir verða ræktendur hæstu kynbótahrossa ársins í hverjum aldursflokki.

Fákur býður félagsmönnum í mat og hvetjum við alla félagsmenn til að mæta og eiga saman skemmtilega kvöldstund.

Húsið opnar 19:00 og borðhald hefst 19:30.

Til að geta áætlað mat fyrir kokkinn þá óskum við þess að þeir sem ætla að koma skrái sig í meðfylgjandi form: