Hið margrómaða Herrakvöld Fáks verður haldið laugardaginn 10. október næstkomandi í Félagsheimili Fáks í Víðidal.

  • Tónlistarmaðurinn, skáldið og myndlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson mun skemmta gestum. 
  • Hlynur Snær og hljómsveit munu spila fyrir dansi.

Miðasala fer fram í Skalla Hraunbæ og Hestakaupfélaginu, Brekknaási 9, og hefst miðvikudaginn 7. október og er opin til 12:00 þann 10. október. 

Á boðstólunum verður steikarhlaðborð að hætti Grillvagnsins.

Húsið opnar 19:00 og borðhald hefst 19:30.

Húsið opnar fyrir konur 22:00.

Miðaverð 10.900 kr.