Uppskeruhátíð barna og unglinga verður haldin 5. nóvember næstkomandi og er sameiginleg með Spretti í veislusal félagsins í Sprettshöllinni.

Á hátíðinni verða veitt verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á keppnisárinu 2024 í eftirfarandi flokkum. 

  • Besti keppnisárangur í barnaflokki, stúlka og drengur
  • Besti keppnisárangur í unglingaflokki, stúlka og drengur

Fákur óskar eftir upplýsingum um árangur félagsmanna á íþrótta- og gæðingamótum á árinu 2024.

Viðmiðunarreglur við val á afreksknöpum má sjá <hér>.

Árangursupplýsingar skulu berast á eftirfarandi formi í siðasta lagi miðvikudaginn 25. nóvember.

Haft verður samband við alla þá sem hljóta verðlaun fyrir viðburðinn.