Ágætu Fáksfélagar!

Við hjá Landsmóti leitum að kröftugum sjálfboðaliðum til að hjálpa okkur að gera Landsmót í Reykjavík að því flottasta hingað til! Það er mikilvægt að ná að manna alla þætti mótsins og því leitum við til ykkar heimamanna í von um  góð viðbrögð. Við bjóðum þeim sem vilja hjálpa okkur þrennskonar möguleika á vöktun gegn þrennskonar tegundum af aðgöngumiðum:

Ein 6 tíma vakt : Dagmiði sem gildir einn dag milli fimmtudags til sunnudags

Tvær 6 tíma vaktir : Helgarpassi frá fimmtudegi til sunndags

Þrjár 6 tíma vaktir : Vikupassi á Landsmót

Þeir sem hafa áhuga, endilega hafið samband til Thelmu Harðardóttur, thelma@landsmot.is