Boðið er upp á námskeið fyrir útreiðafólk sem vill styrkja leiðtogahlutverk sitt, öðlast betri færni í samskiptum við hestinn sinn, læra að skilja hestinn betur og kenna hestinum á umhverfið.

Kennsla fer fram í hópum og einkakennslu. Fyrsti tími er bóklegur og í framhaldi hefst verkleg kennsla það verða 7 verklegir tímar.

Verð:  30.000.-  kennt verður á þriðjudögum í TM reiðhöllinni.

Kennsla hefst með bóklegum tíma í Guðmundarstofu 6. febrúar 2018.

Skráning á ss@sigrunsig.com  þar sem fram kemur nafn, kt., heimilisfang, netfang og sími.

Einnig þarf að taka fram hvort verið er að skrá sig á byrjendanámskeið eða á framhaldsnámskeið (þeir sem voru í fyrra). Útreiða/hesthúsfélagar geta tekið fram ef þeir vilji vera saman.

Kennarar eru: Henna Siren og Sigrún Sig