Borið hefur á því síðustu daga að verið sé að reka á rekstrarvöllum félagsins utan leyfilegs tíma. Eru hér meðfylgjandi reglur til áréttingar.

Reglur um notkun á skeiðvelli og Asavelli.

  1. Öllum skuldlausum félagsmönnum Fáks er heimilt að nota rekstrarvelli Fáks til reksturs hrossa. Hámarksfjöldi hrossa í einu skal vera takmarkaður við 15 hross í senn.
  2. Heimilt er að vera með rekstur á eftirfarandi tímum:
    • 1. september til 15. apríl
    Virka daga 06:00 til 11:00
    Um helgar 06:00 til 9:00
    • 16. apríl til 15. maí
    Virka daga 06:00 til 09:00
    Um helgar 06:00 til 09:00
    • 16. Maí til 31. ágúst
    Rekstur ekki heimilaður
  3. Þeir sem stunda rekstur skulu tryggja að lokanir séu fjarlægðar að rekstri loknum.
  4. Akstur bifreiða eða annarra ökutækja á rekstrarvöllum er óheimil nema verið sé að reka á vellinum innan uppgefinna tíma.
  5. Þeir sem stunda rekstur gera það á eigin ábyrgð. Verði tjón á aðstöðu á rekstrarvöllum sem rekja má til reksturs skal viðkomandi rekstraraðili bæta tjónið til félagsins.
  6. Framkvæmdastjóra er heimilt að takmarka rekstur á skeiðvellinum án fyrirvara.