BÚBBLUR OG TJÚTT
Kvennareið Fáks verður farin laugardaginn 27. apríl næstkomandi. Lagt verður af stað frá TM-Reiðhöllinni kl 14:30.

Reiðtúrinn er frá reiðhöllinni að Rauðavatni og upp nýju Selhólsleiðina niður Almannadal og í gegnum Rauðhóla heim.

Í stoppi er boðið upp á dömulega drykki, bæði áfenga og áfengislausa, ásamt léttum veitingum til að viðhalda gleðinni.

Þegar heim er komið munum við hittast kl 18:00 í salnum í TM-Reiðhöllinni. Þar verða eðalmenn að grilla dýrindismat handa okkur.

Þær sem ætla ekki á hestbak endilega komið í kvöldmatinn og njótið kvöldsins með okkur.

Kl: 19:00 kemur Jón Sigurðsson og spilar og syngur með okkur inn í kvöldið!

Verð: 3.500 kr. Greiðið inn á reikning 536-26-42765, kt. 060467-5449 Sigrún Guðjónsdóttir, svo þegar þið mætið verður merkt við og þið fáið miða.

Munið að þetta er dagurinn okkar stelpur og njótum hans saman!!