Bókleg kennsla mun fara fram í október /nóvember.  Stefnt er að verklegri kennsla hefjist í janúar 2019 ef næg þátttaka fæst. Markmiðið með þessu er að auka gæði bóklegu kennslunnar og jafnframt gera námið skilvirkara og hagkvæmara fyrir nemendur.

Rétt er að taka fram að nemendur þurfa að ljúka bæði bóklegu og verklegu prófi  til að fá prófskírteini. Athugið að ekki verður boðið upp á bóklegt nám í knapamerkjum aftur fyrr en næsta haust. Námskeiðið er opið öllum þeim er hafa áhuga á að ljúka bóklegu námi í haust.

Lágmarks þátttaka er fjórir á hverju stigi.

Knapamerki 1

  • fimmtud. 18/10 og 25/10 kl. 17.00-18.30  og 1/11 17.00-18.30

Knapamerki 2

  • 18/10 og 25/10 og 1/11 kl. 18.30-20

Knapamerki 3

  • þriðjud. 23/10-30/10-6/11-13/11 17.00-18.30

Knapamerki 4

  • þriðjud. 23/10-30/10-6/11-13/11  18.30-20.00

Knapamerki 5

  • Sækja alla tíma í KM1-2-3-4 og síðan verður bætt við 4 tímum fyrir próf.

Kennt í Guðmundarstofu (Gamla félagsheimilið). Kennari verður Sigrún Sigurðardóttir.

Skráning í bóklega kennslu er á ss@sigrunsig.com Fram þarf að koma í hvaða km viðkomandi er að skrá og svo nafn, kt, heimili og sími

Nemendur þurfa að útvega sér kennslubækur fyrir fyrsta tímann og fást þær í m.a. í Líflandi og Ástund.