Nú viljum við kanna áhugann á keppnisnámskeiði hugsað fyrir börn, unglinga og ungmenni sem stefna í landsmótsúrtöku sem og/eða önnur mót. Stefnt er að því að ná 2 einkatímum í viku fram að Gæðingamóti Fáks /úrtöku fyrir Landsmót 26.–29.maí. Námskeiðið verður bæði í reiðhöllinni og á hringvellinum.
Yfirumsjón með námskeiðinu eru þær Vigdís Matthíasdóttir og Edda Rún Guðmundsdóttir. Báðar eru þær þaulvanir keppnismenn og hafa náð góðum árangri. Einnig munu koma að námskeiðinu aðrir gestakennarar sem og dómarar. Reiðkennarar taka út knapa og hest, meta styrkleika og veikleika og vinna út frá því og þeim markmiðum sem knapinn setur sér.
Námskeiðið er hugsað fyrir gæðingakeppni og eftir landsmótsúrtöku verður síðan annað öflugt námskeið með sömu reiðkennurum fram að Landsmóti og munu þeir fylgja knöpum alveg eftir, á Landsmótinu – í braut og taki á móti þeim úr braut.
Verð á námskeiðinum fer svolítið eftir þátttökufjölda en reynt verður að hafa það í algjöru lágmarki.
Tengill á skráningareyðublað er hér að neðan.
Nánari upplýsingar: aeskulydsdeildfaks@gmail.com eða Þórunn 8698800.