Á morgun laugardag, 6. maí, koma Harðarmenn í heimsókn til okkar í Fáki.
Að venju er riðið á móti Harðarmönnum og verður lagt af stað frá stóra gerðinu í A-tröð klukkan 13:00. Þá verður riðið upp í Ósakot þar sem við hittum Harðarmenn klukkan 14:00.
Í Guðmundarstofu í félagsheimilinu verður boðið upp á veitingar.
Allir velkomnir.