Á morgun mánudaginn 2. febrúar er fyrsti gámadagur ársins. Verða gámarnir staðsettir við TM-Reiðhöllina og eru þeir opnir frá klukkan 16:00 til 20:00.

Gámarnir eru eingöngu fyrir þá sem eru félagsmenn í Fáki. Verða gámarnir vaktaðir og þeir sem ekki eru félagsmenn vísað frá.

Hægt er að ganga í félagið með því að senda póst á skraning@fakur.is

Munum að flokka rétt. Einungis rúlluplast má fara í plastgáminn, ekki plast af ruslapokum, spæni eða baggabönd.