Í næstu viku fer námskeiðahald Fáks á fullt en það byrjar frekar snemma í ár. Opið er fyrir skráningar í Sportabler á öll námskeið sem hefjast nú í janúar.
Þar er hægt að nálgast lýsingu á hverju námskeiði fyrir sig. Minnum á að hægt er að nota frístundarstyrk 2024 á öll námskeið fyrir börn yngri en 18 ára.
Hér að neðan má sjá þau námskeið sem eru í boði og lýsingu á þeim:
Henna og Sigrún bjóða upp á vetrarþjálfun fyrir polla og börn
Æfingar hefjast fimmtudaginn 11. janúar og er frá kl 16:30-19:30.
Námsefnið verður fjölbreytt:
Áseta og stjórnun
- Ábendingar og gangtegundir (hæfniviðmið knapamerki 1 og 2)
- Þrautir og leikir sem hjálpa knöpunum að skilji eðli hestsins, hvernig hann hugsar og lærir.
- Undirbúningur fyrir þátttöku í vetrarmótum
- Undirbúningur fyrir munsturreið/slaufur og sýningaratriði.
- Undirbúningu fyrir fyrstu skref í hindrunarstökki.
![hennaogsigrun-1](http://fakur.is/wp-content/uploads/2019/04/hennaogsigrun-1-1024x576.jpg)
Keppnisnámskeið með Kára Steins og Vigdísi Matt
Námskeiðinu er skipt upp í 2 hluta:
- Fyrri hluti:10.janúar- 27.mars er undirbúningstímabil – Skráning opin
- Seinni hluti: 3.april- 22.maí er meiri áhersla lögð á æfingar fyrir keppni úti á velli – Skráning opnar í mars.
Kári og Vigga kenna saman með tvo knapa í einu og er kennsla 30 mín á hvern nemanda.
Kennt verður 1 sinni í viku á miðvikudögum í reiðhöllinni í Víðidal.
Á námskeiðinu verður boðið uppá:
- Æfingu með íþrótta-/gæðingadómara
- Fyrirlestur með knöpum
- Sýnikennslu
- Sætisæfingar
![Vigdis Matt og Skjoni](http://fakur.is/wp-content/uploads/2023/11/Vigdis-Matt-og-Skjoni-1024x683.jpg)
![Kári Steinsson-1](http://fakur.is/wp-content/uploads/2023/03/Kari-Steinsson-1-1024x658.jpg)
Einkatímar með Vilfríði Fannberg fyrir 18 ára og yngri í C-tröð
![vilfridur-viljar](http://fakur.is/wp-content/uploads/2022/08/vilfridur-viljar-1024x576.jpg)
Fákar og fjör – Lánshestanámskeið vorönn 2024
Fákar og fjör býður upp á reiðkennslu á ársgrundvelli þar sem við leggjum áherslu á fjölbreytt starf og að allir geti fundið sig í hestamennskunni. Klúbburinn hentar bæði byrjendum og vönum hestakrökkum. Um kennsluna sjá þær Sif Jónsdóttir og Karen Woodrow, en báðar eru þær menntaðir reiðkennarar frá Háskólanum á Hólum.
Við höfum í gegnum hestaíþróttaklúbbinn reynt að koma á móts við þá sem hafa áhuga á því að stunda íþróttina en hafa ekki aðgang að hesti. Kennslan fer fram 1x – 2x í viku á félagssvæði Fáks.
![karen](http://fakur.is/wp-content/uploads/2015/02/karen2.jpg)
![fakar2019](http://fakur.is/wp-content/uploads/2019/08/fakar2019.jpg)