Á næstu dögum og vikum verður farið í hin ýmsu verkefni á Almannadalssvæðinu sem nýtast hestamönnum á öllu félagssvæði Fáks.
Reykjavíkurborg leggur árlega framkvæmdafé til svæðisins og hefur það verið notað til uppbyggingar innviða eins og reiðvega. Aðkoma Fáks er að velja verkefni hverju sinni í samráði við borgina og hesthúseigendur í Almannadal. Auglýst var eftir tillögum að framkvæmdum í Almannadal 14. maí síðastliðinn.
Hér er stutt upptalning á þeim verkefnum sem unnin verða í ár:
- Bætt verður vikri í keppnisvöllinn í Almannadal.
- Bætt verður úr öryggi þar sem riðið er yfir bílveg í Rauðhóla.
- Öryggisgirðin verður sett milli reiðvegar og bílvegar.
- Keyrt verður efni í dældina við hliðina á bílvegi.
- Einungis verður hægt að ríða yfir bílveg á einum stað og merkingar verða settar upp.
- Lýsing verður sett í undirgöngin undir Suðurlandsveg
- Lýsing verður bætt þar sem reiðvegur þverar bílveg við Fjárborg.
- Hluti reiðvegar næst bílvegi verður lagfærður sunnan við Vegbrekkur.
- Grysjað verður norðan Almannadals þar sem reiðgötur mætast.
Hér má sjá loftmynd af framkvæmdasvæðinu.