Ný leið: Fáksferð á Þingvöll 14.maí, uppstigningardagur.
Því miður þurfum við að fresta ferðinni inn í Marardal vegna færðar þar. Reiðleiðin er mjög blaut og ekki fær. Gulli fór á staðinn og kynnti sér aðstæðurnar og þetta er niðurstaðan.
Við förum í staðinn á Skógarhóla á Þingvöllum og ríðum út í Þingvallaþjóðgarði.
Brottför: Ekið frá Víðidal kl 10:00 með hesta í kerrum.
Reiðleið A: Upp með Ármannsfelli, inn í þjóðgarðinn, gegnum Hrauntún og í Skógarkot. Sama leið til baka. U.þ.b. 3.klst/16 km (einhesta)
Reiðleið B: Frá Skógarkoti áfram yfir að Gjábakka og síðan “nýju” leiðina til baka að Ármannsfelli. U.þ.b. 5 klst/24 km (með fleiri hross til reiða).
Fólk velur hvorn kostinn það kýs. Við vonum að Fáksfélagar taki vel í og komi með okkur á fimmtudag. Veðurspáin lítur vel út.
Mikilvægt: Hugmyndin er að sameinast í kerrur! Það er nauðsynlegt að vera í sambandi við Gulla í gsm 824-6406 eða Sirrýju í gsm 8600-420 til að tilkynna þátttöku og til að fara yfir kerrumál. Markmiðið er að allir sem hafi áhuga á komist með, hvort sem menn eigi kerrur eða ekki.