Fyrirlestur með Sigríði Pétursdóttur. Gæðingakeppni- hvað þarf til að ná árangri?
Mánudaginn 18 maí ætlar Sigga Pé ætlar að vera með áhugaverðan fyrirlestur í gæðingakeppni – fyrirkomulag og allt annað sem tengist keppninni. Sigga er reynslumikill dómari sem heur dæmt gæðingakeppni til margra ára. Hún ætlar að fara yfir helstu reglur og leiðara ásamt því að gefa innsýn í hvernig dómarar komast að niðurstöðu og hvað keppendur geta gert til að ná sem bestum árangri.
Hvetjum forelda sérstaklega til að mæta með börnum og unglingum.
Fyrirlesturinn hefst kl.18:00 í veislusalnum í TM reiðhöllinni. Frítt er inn og heitt verður á könnunni.
Mikilvægur fyrirlestur fyrir alla Fáksara bæði fullorðna og unga sem stefna á úrtöku fyrir Landsmót, en úrtakan hefst 22 maí.