Anna Valdimarsdóttir og Telma Tómasson verða með fyrirlestur um fimiþjálfun hesta þann 29. mars nk. í félagsheimili Fáks kl. 19:30
Tilvalið tækifæri fyrir alla hestamenn til að læra meira um þjálfun og uppbyggingu hestsins síns. Til hvers notum við fimiþjálfun, hvernig fer hún fram, geta allir fimiþjálfað hestinn sinn osfrv. Fimiþjálfun bætir alla hesta og er einfaldari en menn halda og ætlar Anna að leiða okkur í allan sannleikann um hvernig er best að fimiþjálfa til að ná sem bestum árangri. Anna og Telma hafa lagt mikla vinnu í þennan fyrirlestur og hafa m.a. tekið upp helling af efni sem sýnt verður á fyrirlestrinum.
Einstakt tækifæri til að fá innsýn í fimiþjálfun.

Allir velkomnir, léttar veitingar í boði.
Fræðslunefnd Fáks