Almannadalsmótið verður haldið laugardaginn 18. maí klukkan 13:00.

Keppt verður tölti og skeiði. Töltkeppnin verður með T7 fyrirkomulagi; fyrst er riðið hægt tölt og svo snúið við og sýnd frjáls ferð á tölti.

Keppt er í eftirfarandi greinum:

  • Pollaflokkur
  • Barnaflokkur
  • Unglingaflokkur
  • Opinn flokkur – 2. flokkur – 18 ára og eldri / minna keppnisvanir
  • Opinn flokkur – 1. flokkur – 18 ára og eldri / meira keppnisvanir
  • 100 m skeið.

Mótið er létt og skemmtilegt og hvetjum við alla áhugasama að mæta og taka þátt. Að loknu móti verða grillaðar pylsur fyrir þátttakendur og gesti.

Skráning opnar eftir viku, þriðjudaginn 14. maí og verður auglýst hér á síðunni. 

Skráning verður opin til klukkan 10:00 laugardaginn 18. maí. Einnig skráning á staðnum
Einnig hægt að skrá sig á staðnum en þá hvetjum við fólk til að mæta tímanlega.

Ekkert skráningargjald er fyrir polla, börn og unglinga.

3.000 kr skráningargjald fyrir skeið og opinn flokk 1. og 2.