Æskulýðsnefnd býður upp á reiðnámskeið með Vilfríði Fannberg fyrir unglinga og ungmenni.
Boðið verður upp á tvo mismunandi hópa.
- Almennt reiðnámskeið með áherslu á ásetu og stjórnun og samband milli manns og hests. 2 í hverjum hóp.
- Kennsla með áherslu á fimi þjálfun. 2 í hverjum hóp.
Verð: 26.000 kr.
Kennsla fer fram á miðvikudögum frá klukkan 17:00 í fjögur skipti. Kennsla hefst 10. maí í TM-höllinni.
Hægt verður að halda áfram í júní.
Skráning fer fram á www.sportabler.com