Ör-námskeið í hestanuddi/Dagsnámskeið
Dagskrá:
Kl. 11 – 13 (m. matarhléi)
- Farið verður í gegnum helstu vöðvahópa hestsins, staðsetningu og hlutverk.
- Farið í helstu nuddgrip sem notuð eru. Einnig hvenær nudd getur verið nytsamlegt og hvenær ekki á að nota nuddmeðferð.
- Einnig verður farið í hvað helstu vandamálin eru og hvernig við getum notað nuddmeðferð til að bæði fyrirbyggja og meðhöndla.
Kl. 13:30 – 16/17
- Farið verður í verklega kennslu þar sem nemendur verða 2 með einn hest og æfa sig í verklegum æfingum. Farið verður í nuddaðferðir og ýmsar æfingar.
Hámarksfjöldi er 20 þátttakendur.
Innifalið: Námskeið – fyrirlestur og verklegt + námsefni og annað efni sem dreift er til þátttakenda
Kynning á fyrirlesara:
Auður Sigurðardóttir/Hestanudd og heilsa – starfa meðal annars sem hestanuddari þar sem markmiðið er að stuðla að almennri heilsueflingu fyrir hross á öllum aldri og öllum stigum þjálfunar.
Menntun: Hestanuddari frá NHT. Viðurkenndur hestanuddari frá NHT og félagi í IEBWA (International Equine Body Worker Association).
Að auki:
- Námskeið í Acupressure fyrir hesta
- Námskeið í notkun laser í meðferð
- Námskeið í tannheilsu hrossa
- Námskeið í hófaheilsu hrossa
- Námskeið í mátun reiðtygja, hnakka, höfuðútbúnaðar og méla.
Námskeiðið kostar 3.500 kr per mann. Skráning fer fram á Sportabler.