ATH – þessi viðburður er ekki á vegum Fáks heldur Framsóknarflokksins.
N.k. föstudag munu frambjóðendur og ráðherrar Framsóknarflokksins bjóða hestamönnum í reiðtúr, grill, skemmtun og spjall í veislusal TM hallarinnar í Víðidal.
Þau sem hafa boðað komu sína eru meðal annarra Sigurður Ingi Jóhannesson, Ásmundur Einar Daðason, Lilja Alfreðsdóttir, Brynja Dan, Guðni Ágústsson og fleiri.
Dagskrá er eftirfarandi:
- Kl. 17.30 mæting við TM höllina í Víðidal fyrir þá sem ætla í reiðtúrinn
- Kl. 18.00 lagt af stað frá reiðhöllinni og riðinn hringur um Rauðhóla og að Rauðavatni undir leiðsögn Sigurbjörns Bárðarsonar
- Kl. 19.30 menn fara að tínast heim úr reiðtúrnum og þeir sem ætla bara í grillið koma.
- Kl. 20.00 Grillveisla og drykkir í boði Framsóknarflokksins í veislusal reiðhallarinnar
- Kl. 20.30 c.a. Skemmtiatriði, ræður og spjall á milli stjórnmálafólks og hestamanna
Tilvalið tækifæri til að hitta þingmenn og frambjóðendur Framsóknar og ræða við þá um þau málefni sem brenna á vörum hestamanna.