Fákur leitar að áhugasömum einstaklingum til að starfa í æskulýðsnefnd og mótanefnd.
Æskulýðsnefndin skipuleggur viðburði og aðrar uppákomur til að þeir krakkar sem stunda hestamennsku í Fáki kynnist hvort öðru. Þá skipuleggur nefndin námskeiðahald vetrarins í samstarfi við fræðslunefnd Fáks. Skemmtilegt og gefandi starf fyrir áhugasama einstaklinga.
Mótanefnd Fáks heldur utan um skipulagningu móta í Fáki. Framundan á þessu ári eru eftirfarandi mót:
- 20. febrúar – Fyrstu vetrarleikar Fáks
- 13. mars – Aðrir vetrarleikar Fáks
- 22. apríl – Firmakeppni Fáks
- 15. maí – Almannadalsmótið
- 21.-22. maí – Gæðingamót Fáks
- 14.-20. júní – Reykjavíkurmeistaramótmót Fáks
Gott er að hafa þessar nefndir stórar því margar hendur vinna létt verk!
Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við skrifstofu í síma 898-8445 eða á einar@fakur.is