Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir reiðkennari ætlar að bjóða upp á stutt og hnitmiðað grunn- og framhaldsnámskeið um vinnu í hendi og hringteymingar.
Námskeiðið hefst mánudaginn 9. mars klukkan 18:30 í TM-Reiðhöllinni.
Farið verður í hvernig hægt er að notast við vinnu við hendi til að hjálpa hestinum að skilja grunnábendingar og að ná betri stjórn á yfirlínu og andlegu og líkamlegu jafnvægi. Grundvöllur árangurs er að hesturinn sé sáttur og skilji ábendingar knapans, hvort sem það er frá jörðu eða á baki.
Einnig verður farið í grunnatriði í hringteymingum og hvernig hægt er að nota það sem viðbót við fjölbreytta þjálfun til að byggja upp réttu vöðvana í hestinum.
Skráning fer fram á Sportfeng og kostar námskeiðið 12.000 kr.
Þátttakendur mæta með eigin hest og búnað.