Opið er fyrir skráningar á opna WR Reykjavíkurmeistaramót Fáks sem fram fer dagana 1.- 7. júní n.k. Á Facebook má finna viðburðinn undir nafninu WR Reykjavíkurmeistaramót Fáks 2026 og þar má finna ýmsar upplýsingar um mótið, svo það er um að gera að melda sig eða merkja við „going“ á þann viðburð til að fylgjast með fréttum.

Skráningar í greinar fara fram í gegnum Sportfeng, IS2026FAK130 og henni lýkur á miðnætti 24. maí.
Allar spurningar varðandi skráningar á mótið skal senda skriflega á skraning@fakur.is.

Skráningar sem berast eða eru ógreiddar eftir að skráningarfresti lýkur verða ekki teknar gildar.
Skráum í tíma svo vandamál sem upp geta komið í skráningu séu leyst áður en frestur rennur út.

Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:

Nái skráningar ekki 25 í flokki eru eingöngu riðin A-úrslit.
Nái skráningar ekki 10 í flokki fellur flokkurinn niður.
Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
Mótið er World Ranking mót og mikilvægt að keppendur hafi kynnt sér nýjustu útgáfu af keppnisreglum. Sjá nánar á vef LH og FEIF.

Skráningargjöld eru eftirfarandi:

• 12.000 kr – meistaraflokkur og ungmennaflokkur
• 11.000 kr – 1. og 2. flokkur
• 7.500 kr – barna- og unglingaflokkur
• 10.000 kr – 150m, 250m og 100m flugskeið

Greinar og flokkar í boði:

T1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
T2 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
T3 – meistaraflokkur, unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
T4 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
T7 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 2. flokkur.
V1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
V2 – meistaraflokkur, unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
V5 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 2. flokkur.
F1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur.
F2 – meistaraflokkur, unglingaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
P1 250m skeiðmeistaraflokkur, ungmennaflokkur.
P2 100m skeið meistaraflokkur, 1. flokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur.
P3 150m skeiðmeistaraflokkur, ungmennaflokkur.
PP1 gæðingaskeið – meistaraflokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.

Það verður að venju mikill hestakostur og glæsileg umgjörð sem einkenna munu Víðidalinn í Reykjavík þessa mótsdaga og mótið verður í beinu streymi á Eiðfaxa TV.

Fáksmenn bjóða öll velkomin að fylgjast með heimsklassa sýningum í öllum keppnisgreinum, styrkleika- og aldursflokkum.

Mótsstjóri: Hilda Karen Garðarsdóttir
Yfirdómari: Sigríður Pjetursdóttir