Sjálfboðaliðar eru hjartað í félagsstarfi Fáks því án þeirra væru engir viðburðir og engin mót. Fákssamfélagið er ríkt af sjálfboðaliðum því bak við alla viðburð félagsins er hópur fólks sem leggur á sig ómælda vinnu við að halda félagsstarfinu lifandi og fjölbreyttu. Verður þeim seint nógu vel þakkað fyrir þeirra störf í þágu Fáks.
Framundan eru stórir viðburðir í mótahaldinu; Gæðingamót Fáks – Landsmótsúrtaka, Reykjavíkurmeistaramót og kynbótasýningar í júní. Til að geta mannað allar stöður og haldið úti þjónustu óskum við eftir fleiri sjálfboðaliðum til starfa.
Í meðfylgjandi skráningarformi hér að neðan er hægt að skrá sig á blað sé áhugi fyrir að aðstoða okkur við mótahaldið.