Þriðjudaginn 19 maí fá börn, unglingar og ungmenni tækifæri til að ríða æfingaprógam fyrir gæðingadómarann Siggu Pé á Hvammsvellinum, en Sigga er reyndur gæðingadómari til margra ára.
Fyrirkomulagið er þannig að hver knapi ríður sitt prógram og fær svo tilsögn um það hvað var gott og hvað má betur fara. Einnig er hægt að fá einkunnir fyrir prógrammið hjá henni ef áhugi er á því.
Hægt er að velja að vera á milli:
1) 15:00-16:00
2) 16:00-17:00
3) 17:00-18:00
4) 18:00-19:00
Áætlaðar eru ca 8 mínutur á hvern knapa. Mikilvægt er að hver og einn fylgist vel með hvenær hann á að vera inná vellinum.
Nánari upplýsingar um tímasetningar fyrir hvern knapar verða veittar eftir að skráningu lýkur.
Ungir Fáksarar sem stefna úrtöku ættu ekki að láta þetta framhjá sér.
ATH – Skráning fer fram á sportabler og kostar ekki neitt.