Aðalfundur Fáks fer fram 21. apríl næstkomandi í félagsheimili Fáks klukkan 20:00.
Reikningar félagsins eru aðgengilegir á skrifstofu Fáks fram að aðalfundi.
Eftirfarandi framboð hafa borist til stjórnar:
Hlíf Sturludóttir, framboð til formanns
Hlíf hefur verið formaður frá árinu 2025 og gefur kost á sér til áframhaldandi starfa.
Árni Reynir Alfreðsson, framboð til ritara
Kæra félagsfólk,
Ég gef kost á mér til embættis ritara í stjórn Hestamannafélagsins Fáks á aðalfundi félagsins þann 21. apríl næstkomandi.
Hestamennskan er stór hluti af mínu lífi og ég hef alla tíð stundað hana í Víðidal. Fjölskylda mín hefur tekið þátt í starfi Fáks í gegnum tíðina, bæði í almennri hestamennsku og keppni. Ég þekki því vel það samfélag sem félagið byggir á.
Í störfum mínum hef ég öðlast reynslu af stjórnun, sölu, markaðssetningu og kynningarmálum, jafnt á einstaklings- sem fyrirtækjamarkaði. Þá bý ég yfir reynslu af stjórnarsetu og starfi í félagasamtökum. Ég legg metnað minn í jákvætt hugarfar, gagnkvæmt traust, vönduð samskipti og fagleg vinnubrögð.
Ég tel skýra upplýsingagjöf, virkt samtal við félagsfólk og gott samstarf innan félagsins vera lykilatriði. Nái ég kjöri mun ég leggja mig fram við að efla starf Fáks og stuðla að áframhaldandi framþróun félagsins.
Það væri mér ánægja að fá að leggja mitt af mörkum til félagsins okkar og vinna með ykkur að áframhaldandi uppbyggingu þess.
Arnar Máni Sigurjónsson, framboð til meðstjórnanda
Ég er 24 ára og hef verið félagi í Fáki alla mína tíð. Ég stunda hestamennsku með fjölskyldu minni og við höfum öll verið virkir félagar í Fáki og tekið þátt í félagsstarfi og keppnum félagsins.
Ég er menntaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum en starfa í dag sem vélamaður hjá Kambi ehf. Samhliða því þjálfa ég og tem hross úr eigin ræktun og kenni ungum og upprennandi reiðmönnum.
Ég hef mikinn áhuga á að leggja mitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og þróunar félagsins. Sérstaklega vil ég styðja við öflugt æskulýðsstarf, bætta aðstöðu og jákvæða þróun í kennslu og þjálfun innan Fáks. Ég tel mikilvægt að hlúa að bæði almennri hestamennsku og afreksstarfi og skapa umhverfi þar sem allir félagsmenn geta notið sín. Ég tel mig geta lagt fram ferska sýn og kraft í stjórn félagsins.
Ég vona að ég fái traust til að taka þátt í starfi stjórnar Fáks og vinna með ykkur að áframhaldandi vexti og árangri félagsins.
Brynja Kristín Magnúsdóttir, framboð til meðstjórnanda
Ég hóf mína hestamennsku fyrir allnokkrum árum hér í Víðidalnum, í Reiðskóla Reykjavíkur og í dag stunda ég enn mína hestamennsku hér í Fáki. Ég starfa sem lögmaður á LEX lögmannsstofu, hef verið virk í félagsstörfum á öðrum vettvangi en hef gríðarlegan áhuga á því að taka þátt í þeirri öflugu uppbyggingu sem hefur átt sér stað upp á síðkastið innan Fáks.
Ég tel þekkingu mína og reynslu geta nýst vel í þetta verkefni og er ég reiðubúin að leggja mig alla fram við að starfa í þágu félagsmanna í stjórn Fáks.
Eva Kærnested, framboð til meðstjórnanda
Ég er tvítug og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég á tveggja ára son sem brasar mikið með mér í hesthúsinu. Ég hef lengi verið að keppa og er á þessu tímabili U21 landsliðsknapi.
Ég hef verið fáksfélagi í 10 ár og hlakka til að koma með nýja sýn inni í starfið.
Ívar Hauksson, framboð til meðstjórnanda
Ívar hefur setið í stjórn Fáks og æskulýðsnefnd undanfarin 2 ár og gefur kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.