Árlega ríða Harðarmenn í Víðidalinn og að venju tökum við vel á móti þeim. Við ætlum að hitta þá við Óskot og ríða með til baka í dalinn. Fákur sér um veitingar sem boðið verður uppá í anddyri reiðhallarinnar í Víðidal.
Við leggjum af stað frá Lýsishöllinni kl 12:30
Hestar í þokkalegu formi ráða vel við túrinn sem verður u.þ.b. 15 km. Við vonumst til að sjá sem flesta og ekki síst þá sem hafa farið með okkur í vetur, einnig við viljum hvetja menn til að deila þessum upplýsingum með reiðfærum vinum og vandamönnum.

Á næstunni: Framundan eru nýjungar hjá okkur sem við munum kynna betur siðar, en í stuttu máli er hugmyndin sú að setja hrossin á kerru og ríða út fjarri borginni. Við erum að skoða reiðleiðina inn í Marardal þann 14.5. Meira um þá skemmtulegu reiðleið þegar nær dregur.
Kveðjur
Gulli, gsm 824-6406
Sirrý, gsm 8600-420