Nú þegar farið er að vora þá er gott að rifja upp þær umferðarreglur sem gilda á úti á reiðvegum.

Þá skal sýna sérstaka aðgát í kringum börn og óörugga knapa. Knapar eru á ýmsum stigum í sinni hestamennsku og því er fyrir mestu að sýna öðrum knöpum tillitssemi.

  1. Hestamenn víkja til hægri á reiðleiðum.
  2. Hestar sem eru teymdir skulu ávallt vera hægra megin og ekki fleiri en tveir (þrír til reiðar).
  3. Reiðhjálmar eru sjálfsögð öryggistæki.
  4. Endurskinsmerki í skammdegi veita hestum og mönnum aukið öryggi.
  5. Lausir hundar eru ekki leyfilegir á reiðleiðum eða í hesthúsahverfum.
  6. Áfengi og útreiðar fara ekki saman.
  7. Sýnum tillitsemi, ríðum ekki hratt á móti eða aftanundir aðra reiðmenn.
  8. Fari margir hestamenn saman í hóp skal ríða í einfaldri röð ef umferð er á móti
  9. Ríðum á reiðvegum og slóðum þar sem því verður við komið.
  10. Teymum hesta, rekstrar eru bannaðir í þéttbýli.