Passar hnakkurinn á hestinn þinn? Hestar eru eins misjafnir að stærð og gerð og þeir eru margir og því er mikilvægt að huga að því hvort hnakkurinn passi í samræmi við bak hestsins.
Miðvikudaginn 15 april frá kl 17:00 – 20:00 verður fyrirlestur með Tonje Lund Ness í mátun hnakka á hesta. Fyrirlesturinn er kynning í grunnatriðum sem gerir þátttakendum kleift að meta sjálfir hvort hnakkurinn henti bæði hestinum sínum og sér sem knapa.
Frítt er inn á fyrirlesturinn sem er opin öllum og verður kaffi og snarl í boði hnakkafyrirtækisins Draupnis. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Til að áætla fjölda þarf að melda sig á viðburðinn á sportabler
Staðsetning: vélageymsla í Lýsishöllinni þar sem járningarnámskeiðin hafa farið fram.
Fyrirlesturinn mun fjalla um helstu grundvallaratriði í hnakkamátun. 4 ólikir hestar að gerð verða teknir fyrir sem dæmi og meðal annars verður farið yfir:
- Stærð hnakka og lykilatriði sem varða bæði hest og knapa
- Mismunandi virki, þyngdardreyfing og þrýstingur og mikilvægi þess að hnépúðarnir séu rétt staðsettir fyrir knapa
- Mikilvægi þess að hnakkurinn passi rétt á hestinn útfrá byggingu hans
- Hvað einkennir hnakka sem passa ekki hestinum
Tonje er menntaður dýralæknir með yfir 50 ára reynslu af því að vinna með íslenska hesta. Í þessum fyrirlestri mun Tonje byggja á víðtækri reynslu sinni sem dýralæknir og sérfræðingur í líkamsmeðhöndlun hesta en síðastliðin 25 ár hefur hún sérhæft sig í meðhöndlun vöðva hjá hestum, og hefur unnið sem kírópraktor, osteópatíer og nuddari. Starf hennar felur gjarnan í sér að meta bak hestsins og veita knöpum ráðgjöf til að bæta bæði líðan og frammistöðu hestsins.
Tonje er jafnframt einn af eigendum hnakkamerkisins Draupnir og aðalhönnuður þess, en fyrirtækið hefur framleitt hnakka fyrir íslenska hesta í 28 ár. Undanfarin ár hefur hún unnið náið með Ninu Molestad til að dýpka enn frekar þekkingu sína og færni á sviði hnakkamátunar. En Nina er menntuð í hnökkum og hnakkamátun í UK hjá Society of Master Saddlers.
Þegar fyrirlestrinum lýkur verður Draupnir með 15 min kynningu á hnökkum. Hægt er að kynna sér hnakkana á heimasíðunni draupnir.no.