Aðalfundur Fáks verður haldinn 21. apríl 2026 í félagsheimili Fáks klukkan 20:00.
Reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins frá og með 15. apríl. Ef starfsmaður skrifstofu er ekki við er hægt að hringja í 898-8445.
Framboðum til stjórnar, þ.á.m. formanns, skal skila skriflega til skrifstofu félagsins eða á netfangið fakur@fakur.is eigi síðar en viku fyrir aðalfund.
Kosið er um eftirfarandi embætti:
- Formann
- Ritara til tveggja ára
- Meðstjórnanda til tveggja ára
- Meðstjórnanda til tveggja ára
- Meðstjórnanda til eins árs
Úr stjórn ganga:
Hákon Leifsson, meðstjórnandi
Sigurður Elmar Birgisson, meðstjórnandi
Þormóður Skorri Steingrímsson, meðstjórnandi
Ívar Hauksson, ritari
Hlíf Sturludóttir gefur kost á sér áfram til formanns og Ívar Hauksson gefur kost á sér áfram til meðstjórnanda.
Á dagskrá fundarins eru lagabreytingar en þær eru tilkomnar vegna krafna frá ÍSÍ.
Tillögur að breytingum má sjá í meðfylgjandi link.
Dagskrá aðalfundar eru meðfylgjandi:
- Formaður leggur fram og skýrir skýrslu stjórnarinnar um starfsemi félagsins á liðnu ári.
- Gjaldkeri skýrir og leggur reikninga félagsins fram til samþykktar. Fjárhagsáætlun fyrir næsta ár skal jafnframt lögð fram.
- Lagabreytingar skv. 16. gr.
- Kosin stjórn skv. 5. gr.
- Kosinn a.m.k. einn skoðunarmaður, endurskoðandi eða endurskoðunarfyrirtæki skv. 5. gr.
- Ákvörðun árgjalds skv. 8. gr.
- Önnur mál, sem félagið varðar