Fákur óskar eftir starfsmanni til að leiða og skipuleggja fræðslu- og æskulýðsstarf félagsins auk þess sem starfsmaður er tengiliður félagsins við félagshesthús Fáks.

Laun eru verktakalaun og vinnuskylda er í um það bil 9 mánuði á ári. Um hlutastarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að framfylgja stefnu stjórnar um fræðslustarf félagsins.
  • Umsjón og skipulagning fræðslustarfs.
  • Samskipti við reiðkennara um fyrirkomulag reiðkennslu og uppsetning námskeiða í Sportabler.
  • Miðlun upplýsinga til félagsmanna og nemenda um námskeiðahald í gegnum vef Fáks og samfélagsmiðla.
  • Skipulagning fræðslukvölda.
  • Æskulýðs- og fræðslufulltrúi situr fundi æskulýðsnefndar og vinnur með þeim að skipulagningu æskulýðsstarfs félagsins.
  • Utanumhald með félagshesthúsi Fáks með framkvæmdastjóra.
  • Tengiliður við iðkendur og forráðamenn í félagshesthúsi Fáks.
  • Önnur tilfallandi störf unnin í samráði við framkvæmdarstjóra félagsins.

 Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reiðkennararéttindi.
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni.
  • Góð tölvukunnátta.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.

Umsóknarfrestur er til og með 9. september.

Upplýsingar veitir Hjörtur Berstað formaður í síma 893-7475.

Umsóknir skulu sendar á netfangið einar@fakur.is