Vetrarleikar Fáks verða haldnir laugardaginn 18. febrúar klukkan 11:00. Vegna aðstæðna á keppnisvöllum má búast við að allir flokkar verði inni í reiðhöll.
Skráning fer fram á Sportfeng nema fyrir polla, þeir skrá sig hér að neðan.
Skráningu lýkur 20:00 föstudaginn 17. febrúar og verða ráslistar birtir um kvöldið.
Skráningargjald er 1500 kr fyrir börn/unglinga/ungmenni, 2500 kr fyrir fullorðna, frítt fyrir polla.
Keppnisfyrirkomulagið er þannig að riðið er hægt tölt upp á vinsti hönd, snúið við og sýnd frjáls ferð. Úrslit á eftir hverjum flokki og verðlaunaafhending.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
- Pollaflokkur (teymdir) – Merkt í Sportfeng: Pollagæðingakeppni – Gæðingaflokkur 1
- Pollaflokkur (ríðandi) – Merkt í Sportfeng: Pollagæðingakeppni – Gæðingaflokkur 2
- Barnaflokkur minna vanir – Merkt í Sportfeng: Barnaflokkur gæðinga – Gæðingaflokkur 1
- Barnaflokkur meira vanir – Merkt í Sportfeng: Barnaflokkur gæðinga – Gæðingaflokkur 2
- Unglingaflokkur minna vanir – Merkt í Sportfeng: Unglingaflokkur gæðinga – Gæðingaflokkur 1
- Unglingaflokkur meira vanir – Merkt í Sportfeng: Unglingaflokkur gæðinga – Gæðingaflokkur 2
- Ungmennaflokkur – Merkt í Sportfeng: A-flokkur gæðinga – Gæðingaflokkur 1
- Konur II – Merkt í Sportfeng: A-flokkur gæðinga – Gæðingaflokkur 1
- Karlar II – Merkt í Sportfeng: A-flokkur gæðinga – Gæðingaflokkur 2
- Konur 1 – Merkt í Sportfeng: B-flokkur gæðinga – Gæðingaflokkur 1
- Karlar 1 – Merkt í Sportfeng: B-flokkur gæðinga – Gæðingaflokkur 2
Fákur áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í hverjum þeirra.